Að auka vellíðan í lífi og starfi

Að auka vellíðan í lífi og starfi

Jákvæð sálfræði er vísindaleg nálgun sem hefur það markmið að efla rannsóknir á jákvæðum þáttum mannlegrar hegðunar eins og styrkleikum, vellíðan, velgengni, þakklæti, seiglu, gildum (dyggðum), von, jákvæðum tilfinningum, tilgangi, bjartsýni og hamingju.

Hún veltir fyrir sér hvað einkennir einstaklinga sem ná á farsælan hátt að þroskast og aðlagast ólíkum aðstæðum í lífinu og finnur leiðir til að skapa umhverfi þar sem einstaklingur nær að blómstra og lifa sínu besta lífi. 

Í fyrirlestrinum er farið í hvað rannsóknir á hamingju einstaklinga hafa leitt í ljós og hvernig er hægt að mæla hana. Fjallað er um gagnreyndar leiðir til að auka vellíðan. Farið er í mikilvægi þess að þekkja og efla styrkleika sína en með því aukum við líkurnar á að við blómstrum og getum lifað okkar besta lífi. 

Fyrirlesari: Ingrid Kuhlman, MSc í hagnýtri jákvæðri sálfræði, þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun

Image
Við sérhæfum okkur í því að miðla þekkingu og styrkja þannig einstaklinga og vinnustaði, m.a. með námskeiðum, þjálfun og fyrirlestrum.

Hafa samband

Þekkingarmiðlun ehf. 
Kt. 440102-2550

Ingrid, s. 892 2987
ingrid@thekkingarmidlun.is

Eyþór, s. 892 1987
eythor@thekkingarmidlun.is