Hver verður staða mín við starfslok?

Hver verður staða mín við starfslok?

Það liggur fyrir okkur flestum að eldast og fara á eftirlaun. Við vonum öll að þessi tími verði áhyggjulaus og oftast er hann það en það er ekkert sjálfgefið. Það er mikil áskorun að fara inn í eftirlaunaárin og hætta á vinnumarkaði. Það verða bæði fjárhagslegar og félagslegar breytingar, sem margir hræðast. 

Guðmundur Ragnarsson hefur mikla reynslu af þessum málum og fer í fyrirlestrinum yfir þau fjölmörgu atriði sem þarf að huga að þegar styttist í starfslok. Meðal þess sem hann fer yfir er að vera með skýra sýn á það hver framfærslan verður frá lífeyrissjóðnum og Tryggingastofnun og hvar maður getur séð stöðuna.

Annað sem þarf að vera á hreinu eru sambúðar- og erfðamálin, en illa getur farið ef ekki er vandað til verka. Guðmundur ræðir einnig um mikilvægi þess að njóta lífsins á meðan heilsan er góð.

Fyrirlesturinn vekur upp margar spurningar sem gott er að skoða tímanlega og komast úr því að halda, sem veldur áhyggjum, yfir í að vita, sem veitir öryggi. Hann hentar þeim sem eru komnir yfir fimmtugt og stefna á að eiga áhyggjulaust ævikvöld. 

 

Fyrirlesari: Guðmundur Ragnarsson er vélfræðingur og starfaði sem formaður VM – Félags vélstjóra og málmtæknimanna í 10 ár. Hann var stjórnarmaður í Gildi lífeyrisjóði í 8 ár og sat í miðstjórn ASÍ í 10 ár. Hann rekur í dag GR ráðgjöf og veitir fólki persónulega ráðgjöf varðandi starfslok. 

Image
Við sérhæfum okkur í því að miðla þekkingu og styrkja þannig einstaklinga og vinnustaði, m.a. með námskeiðum, þjálfun og fyrirlestrum.

Hafa samband

Þekkingarmiðlun ehf. 
Kt. 440102-2550

Ingrid, s. 892 2987
ingrid@thekkingarmidlun.is

Eyþór, s. 892 1987
eythor@thekkingarmidlun.is