Njótum aðventunnar

Njótum aðventunnar

Margir upplifa aðventuna sem tímabil sem er fullt af ótal verkefnum og stressi. Við hugsum yfirleitt of mikið, skipuleggjum of mikið, og borðum og drekkum of mikið á þessum árstíma.

Förum á jólahlaðborð, tökum þátt í skipulögðum viðburðum í (tónlistar)skólanum hjá krökkunum, skellum okkur á jólatónleika, hlaupum kófsveitt á milli verslana, skreytum húsið fallegum ljósum, þrífum alla íbúðina hátt og lágt, bökum jólakökur, skrifum jólakort og mætum í ótal fjölskylduboð. Það er auðvelt að tapa sér og margir yfirkeyra sig í öllu þessu jólaati. Þegar jólin ganga svo loksins í garð erum við dauðuppgefin.     

Hér fyrir neðan eru nokkur góð ráð til að hægja á okkur og njóta:

  • Hugleiddu daglega. Hugleiðsla dregur úr streitu, skapar meiri hugarró og sátt og eykur hæfni til að njóta.
  • Dreifðu verkefnum. Aðventan og jólin eru fjölskylduhátíð. Því ekki að deila verkefnum með fjölskyldumeðlimum?
  • Hafðu stjórn á eyðslunni. Það er óþarfi að fara fram úr sér og sitja svo uppi með skuldir og tilheyrandi stress og áhyggjur á nýju ári. Gerðu fjárhagsáætlun og haltu þig við hana.
  • Haltu ofgnótt í skefjum. Það er freistandi að missa sig í kræsingum og gnægtum af mat og drykkjum. Nærðu líkamann með heilbrigðri, hollri fæðu og borðaðu óhollan mat í hófi.
  • Gefðu til góðgerðarmála. Gefðu aukajólapakka fyrir bágstödd börn og farðu með föt sem þú ert hægt að nota í Rauða krossinn.
  • Vertu í núinu. Að vera á staðnum er besta gjöfin. Slökktu á símanum og sjónvarpinu og njóttu samverunnar með fjölskyldu og vinum. Fáðu þér heitt kakó og piparkökur við kertaljós og njóttu.
  • Gerðu raunhæfar væntingar. Lærðu að forgangsraða og segja nei. Það þarf ekki að mæta í öll boð. Hættu að keppast við að hafa allt fullkomið og sýndu velvild í eigin garð.
  • Taktu frá tíma fyrir það sem gefur þér orku. Þetta getur verið eins einfalt og að lesa góða bók, hlusta á hugljúfa tónlist, fara í góðan göngutúr úti í náttúrunni eða föndra með börnunum.
  • Hlæðu. Hláturinn er öflugt meðal fyrir líkama og sál. Hann hjálpar okkur að slaka á, eflir orkuna og eykur vellíðan. Gerðu eitthvað kjánalegt, horfðu á grínmynd eða leiktu þér við börnin. 
  • Þetta getur beðið… Spurðu þig hvort það skipti virkilega máli að þrífa alla skápana eða baka 18 sortir. Sparaðu orkuna fyrir það sem skiptir þig raunverulega máli. 
  • Slakaðu á og hvíldu þig. Jólin eru oft góður tími til að hvílast og hlaða rafhlöðurnar. Hættu að hlaupa, sittu kyrr, andaðu og njóttu.
  • Sýndu þakklæti. Við höfum svo margt sem við getum verið þakklát fyrir. Stillum huga okkar á kærleika og ást.

Njótum aðventunnar og þess að vera til.

Greinarhöfundur: Ingrid Kuhlman. Birtist á Pressunni 6. desember 2016.

 

Image
Við sérhæfum okkur í því að miðla þekkingu og styrkja þannig einstaklinga og vinnustaði, m.a. með námskeiðum, þjálfun og fyrirlestrum.

Hafa samband

Þekkingarmiðlun ehf. 
Kt. 440102-2550

Ingrid, s. 892 2987
ingrid@thekkingarmidlun.is

Eyþór, s. 892 1987
eythor@thekkingarmidlun.is