Gildavinnustofa

Gildavinnustofa

Gildavinnustofa

Námskeið fyrir vinnustaðinn

Lengd:

3 klst.

Námskeiðslýsing

Gildi eru kröftug leið til að móta samskiptin og menninguna á vinnustað. Með því að festa niður þau atriði sem eiga að vera öllum leiðarljós í samskiptum er hægt að koma í veg fyrir árekstra. Gildi eru ekki alltaf upplifuð á sama hátt og því skiptir miklu máli að sameiginlegur skilningur sé á því hvað þau eigi að standa fyrir. Gagnlegt er því að taka góða umræðu og festa niður á blað hvað nákvæmlega felst í þeim. Það stuðlar að dýpri skilningi á eðli þeirra og auðveldar innleiðingu. 

Á námskeiðinu er rýnt í gildin og þau rædd og útfærð. Unnið er í litlum hópum. Hver og einn starfsmaður veltir m.a. eftirfarandi spurningum fyrir sér, ræðir við samstarfsmenn og tekur síðan þátt í sameiginlegum umræðum:

  • Hvað þýða gildin fyrir mig og mitt svið/mína deild?
  • Hvernig birtast þau í okkar starfi?
    • Gagnvart viðskiptavinum/skjólstæðingum?
    • Gagnvart samstarfsmönnum?
    • Gagnvart okkur sjálfum?
  • Hvernig eiga gildin ekki að birtast?
  • Hvernig erum við að standa okkur nú þegar?
  • Hvar gætum við bætt okkur með hliðsjón af gildunum?

Leiðbeinandi

Eyþór Eðvarðsson eða Ingrid Kuhlman, þjálfarar og ráðgjafar hjá Þekkingarmiðlun ehf.

90 kr.
Image
Við sérhæfum okkur í því að miðla þekkingu og styrkja þannig einstaklinga og vinnustaði, m.a. með námskeiðum, þjálfun og fyrirlestrum.

Hafa samband

Þekkingarmiðlun ehf. 
Kt. 440102-2550

Ingrid, s. 892 2987
ingrid@thekkingarmidlun.is

Eyþór, s. 892 1987
eythor@thekkingarmidlun.is